http://www.52.is/


LP international Poland latinoamerica Iceland    Hafa samband            Notendur: 20 Virkir, 5 Skráðir inn - Klukkan er: 00:45

Hot Chip will break your

Nýr á 52.is? Skráðu þig hér, ókeypis!
rss
Ný bloggsíða um Fantasy Premier League
  HotChip, Oct 27 2011

Sælir, ákvað að koma bloggsíðu á laggirnar sem fjallar einungis um Fantasy Premier League.

Endilega kíkjið á þetta ef þið hafið áhuga

http://fantasyfotbolti.wordpress.com/

UPPFÆRT: Var að henda inn bloggi um fyrirliðaval vikunnar

UPPFÆRT 2: Hennti inn öðru bloggi um "Litlu" nöfnin sem lofa góðu þessa helgina.

UPPFÆRT 3: Var að henda inn bloggi um liðsuppstillingar 10. leikviku

UPPFÆRT 4: Fyrsta strategíubloggfærslan komin upp, fjallar um markverði



0 votes

Athugasemdir (2)


Seint febrúarblogg
  HotChip, Mar 09 2011

Sælir kappar,

Ég færði mig upp í 50NL bitana í byrjun febrúar, var þetta í sjötta skipti sem ég reyni við þá bita. Nú breytti ég hinsvegar um strategíu og spilaði eingöngu RUSH. Það er smá tradeoff sem felst í því eins og flestu öðru. Það góða við RUSH er að þú ert mjög fljótur að ná góðu magni af spiluðum höndum. Hinsvegar finnst mér RUSH vera mun meira þreytandi form á póker og maður missir einbeitingu fyrr. Svo er ég ekki með HEM, heldur PokerCopilot, þannig ég er ekki með góða statistík á mótspilara mína. Ef ég ætla að halda áfram á þessari RUSH braut þá verð ég eiginlega að koma upp Windows í Macanum og fá mér HEM. En þetta gekk svo sem ágætlega, sérstaklega til að byrja með, en svo fór að halla smá undan fæti. Ástæðan er annaðhvort að reggarnir fóru að átta sig betur á spilastílnum mínum eða að þessir leikir bjóða bara upp á meiri varíans en ég hélt. En hérna er grafið ásamt smá tölfræði:



Hendur: 35,092
Gróði: $156.13
Rakeback: $423.39
Hagnaður: $579.52

Ég er svona þokkalega sáttur með þetta. Hefði þó viljað halda þessu góða skriði sem ég var kominn á í byrjun mánaðar aðeins lengur, en já í heildina litið bara ágætlega sáttur.

Af einhverji ástæðu fékk ég smá grindleiða um mánaðarmótin og ég hef ekki spilað eitt einasta session í Mars. Hvort það taki enda í náinni framtíð verður bara að koma í ljós. Annars fara prófin í skólanum að nálgast og þarf maður víst að gefa þeim aðeins meiri athygli en áður, svona í ljósi sögunnar. Hins vegar hef ég fundið fyrir áhuga hjá sjálfum mér að spila eitthvað af MTT, bara erfitt að finna tíma fyrir þau. Stefni á að spila eitthvað af MiniFTOPS mótum. Þannig endilega verið á varðbergi þegar ég fer að biðja ykkur um stake

Febrúarmarkmiðin mín voru eftirfarandi:

(x) Sigra 50NL yfir ágætt úrtak, 20-30K hendur.

(x) Spila bara þegar ég er vel upplagður, ekki þegar ég er þreyttur, drukkinn eða upptekinn við eitthvað annað eins og sjónvarpsgláp.

(/) Ekki spila bara til að ná inn volume eða stigum, einbeita mér heldur að pókernum sjálfum og leiðum til að bæta mig.*

(/) Ekki spila við truflandi aðstæður, t.d. í mannmergð eða í kringum háværa tónlist.**

(x) Reyna að stúdera lágmark ¼ af tímanum sem ég eyði í spilun, en ekki bara horfa á myndbönd til að horfa á þau, heldur einbeita mér að því að læra eitthvað af þeim og rita niður punkta.
(x) Sýna variance skilning

* = Fór að gera mér grillur um að ná í Black Card á tímabili og tékkaði ég á Black Card statusnum mínum óspart á þeim tíma. Hristi það svo af mér.
** = Spilaði einu sinni upp í skóla við alls ekki kjöraðstæður. Geri það ekki aftur.


En þá eru það næstu markmið:

Skammtímamarkmið (2-4 vikur):
[ ] Byrja að færa einbeitinguna smám saman frá póker og að skólanum
[ ] Spila eitthvað af MiniFTOPS mótum ásamt öðrum MTT í kringum þau.
[ ] Ekki spila fyrr en ég hef virkilegan metnað fyrir því aftur, þ.e.a.s. hef komist yfir grindleiðann
[ ] Ef mér tekst ofangreint markmið þá gilda sömu skammtímamarkmið og ég setti mér í síðasta bloggi

Langtímamarkmið (6-12 mánuðir):
[ ] Sömu langtímamarkmið og ég setti mér í síðasta bloggi

Þá þakka ég bara fyrir mig, endilega skellið inn línu í comments ef þið hafið einhverjar spurningar eða ábendingar.

Heyri í ykkur í byrjun Mars.

Kv. HotChip



0 votes

Athugasemdir (7)


Uppgjör við 25NL
  HotChip, Feb 04 2011

Sælir félagar,

Nú hef ég verið að hoppa á milli 25NL og 50NL í nokkra mánuði og er það orðið vægast sagt þreytandi. Ég held að ég hafi tekið 5 misheppnuð skot til þessa á 50NL og að lokum alltaf fært mig niður í 25NL aftur þar sem ég sigra leikinn með stöðugleika. Í öðru skotinu mínu náði ég reyndar að koma bankanum upp í ágæta summu sem var meiri en nóg til að færa mig upp í 100NL, en ég ákvað að spila einn dag lengur í 50NL því það var fimmtudagur og hef haft það sem vana að færa mig upp um bita um helgar, auðveldari leikir þá í gangi. En það er ekki frásögufærandi nema að á þeim degi hófst stærsta niðursveifla mín til þessa, hálfur bankinn hvarf á c.a. vikutímabili og ég neyddist til að færa mig aftur niður í 25NL eins og áður segir.

Ástæðurnar fyrir þessari niðursveiflu geta verið nokkrar, kannski var ég bara á heater til að byrja með, kannski var ég bara að runna mjög illa, kannski var ég að spila illa, en þegar ég hugsa til baka þá held ég að þetta eigi allt rætur sínar að tekja til Tilts. Ég tel mig mjög rólegan mann að eðlisfari og sýni ekki miklar tilfinningar. En eitthvað var það sem lét mig spila verr, og en verr, eftir að ég tapaði nokkrum stórum pottum í röð. Tölfræðin laug ekki, þegar ég leit yfir dagana mína þá voru tapdagarnir aldrei litlir, þeir voru kannski ekki margir, en þegar þeir áttu sér stað þá voru þeir nánast aldrei undir 3-4 BI og alveg yfir 10 BI stundum.

Til að leita ráða við þessu kynnti ég mér mann að nafni Tommy Angelo. Ég byrjaði á að hlusta á podcast þáttaröð sem hann gerði fyrir DC sem heitir The Eightfold Path to Poker Enlightenment. Þetta opnaði alveg nýja sýn á póker fyrir mér. Fyrsta sem ég lærði af honum er að allir tilta, allir. Eina sem við getum gert er að draga úr því. Án þess að fara of djúpt í pælingarnar hans Tommy þá snýst þetta aðallega um leiðir til að halda þér sem oftast inn í A-leiknum og gera C-leikinn þinn alltaf betri og betri þangað til þeir verða einn og sami leikurinn. Mikilvægt er að einbeita sér að nútíðinni og að þeim hlutum sem þú stjórnar, ekki eyða aukaorku í hluti sem þú hefur enga stjórn á. En ég allavega mæli með þessum þáttum fyrir ALLA pókerspilara, þó þið haldið að þið tiltið aldrei þá munuð þið læra eitthvað nýtt og nytsamlegt. Opið hugarfar gagnvart þessu er þó mikilvægt. Svo var ég að fá bókina hans The Elements of Poker í pósti nú rétt í þessu, áritaða af meistaranum sjálfum. Mun hella mér í hana sem fyrst.

En þar sem þessi færsla nefnist Uppgjör við 25NL væri ekki ósniðugt að birta grafið mitt frá þeim bitum. Þetta er allt, allavega 99%, spilað á 6-max borðum á Full Tilt. Ég spila alltaf 4-6 borð í einu, aldrei minna og aldrei meira.



Auðvitað vantar rakeback inn í þetta graf, en það ætti að vera væn summa. Yfir þessar tæpu 100K hendur spilaði ég 24/19 stíl. Ég spila að vísu mun lausara en það í dag. Var svolítið fastur í Micro ABC spilastílnum til að byrja með. Sá spilastíll virkar fullkomnlega í 2-10NL en að mínu mati býður 25NL upp á mun meira play.
En næst á dagskrá er sjötta skotið á 50NL og er planið að snúa ekki aftur, ég tel mig vera 100-200% betri spilara en þegar ég tók mitt fyrsta skot þar og ætti ég að ráða við þetta auðveldlega ef ég held rétt á spilunum/músarfletinum.

Skammtímamarkmið (2-4 vikur):
[ ] Sigra 50NL yfir ágætt úrtak, 20-30K hendur.
[ ] Spila bara þegar ég er vel upplagður, ekki þegar ég er þreyttur, drukkinn eða upptekinn við eitthvað annað eins og sjónvarpsgláp.
[ ] Ekki spila bara til að ná inn volume eða stigum, einbeita mér heldur að pókernum sjálfum og leiðum til að bæta mig.
[ ] Ekki spila við truflandi aðstæður, t.d. í mannmergð eða í kringum háværa tónlist.
[ ] Reyna að stúdera lágmark ¼ af tímanum sem ég eyði í spilun, en ekki bara horfa á myndbönd til að horfa á þau, heldur einbeita mér að því að læra eitthvað af þeim og rita niður punkta.
[ ] Sýna variance skilning

Langtímamarkmið (6-12 mánuðir):
[ ] Vera búinn að segja skilið við Micro bitanna.
[ ] Vera orðinn stöðugur sigurvegari í 100NL og sjá fram á að geta spilað 200NL.
[ ] Vera duglegur við að blogga um árangur og markmiðssetningar
[ ] Vera enn betri spilari en ég er í dag svo um munar.

Takk kærlega fyrir lesninguna og ef þið hafið einhverjar spurningar eða ábendingar endilega skellið inn línu í comments.

Ég ætla að enda þetta á þeim orðum sem Tommy Angelo handskrifaði inn í nýju bókina mína:

Remember – To win at poker, you have to be very good at losing
- Tommy Angelo

Sælir að sinni og þangað til næst, haldið tiltinu í lágmarki.

Kv. HotChip



0 votes

Athugasemdir (16)




Næsta síða


Höfundaréttur © 2012. 52.is Allur réttur áskilinn
Hafa samband Leiðarvísir